Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Þriðjudagur, 9. mars 2010
Taktu þátt í að móta bæinn þinn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.3.2010 kl. 08:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 22. febrúar 2010
Framboðslisti samþykktur
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ var samþykktur á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna sl. föstudag. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri leiðir listann. Í næstu sætum eru, Herdís Sigurjónsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Hafsteinn Pálsson og Kolbrún G. Þorsteinsdóttir.
Á listanum eru 3 konur í fimm efstu sætunum Kynja og aldursskipting á listanum er dreifð, 6 konur og 8 karlar skipa og listann og yngsti frambjóðandinn Hjörtur Methúsalemsson er fæddur 1991 en aldursforsetinn, Haraldur Haraldsson er fæddur 1944.
1 Haraldur Sverrisson bæjarstjóri
2 Herdís Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi / umhverfis- og auðlindafræðingur
3 Bryndís Haraldsdóttir Atvinnurekandi
4 Hafsteinn Pálsson bæjarfulltrúi/verkfræðingur
5 Kolbrún G. Þorsteinsdóttir kennari / lýðheilsufræðingur
6 Rúnar Bragi Guðlaugsson innkaupastjóri
7 Theodór Kristjánsson aðstoðaryfirlögregluþjónn
8 Eva Magnúsdóttir forstöðumaður
9 Hreiðar Örn Zoega Stefánsson framkv.stj. Lágafellssóknar
10 Haraldur Haraldsson fyrrv. framkvæmdastjóri
11 Elías Pétursson framkvæmdastjóri
12 Júlía Margrét Jónsdóttir framkvæmdastjóri
13 Hjörtur Methúsalemsson nemi
14 Ragnheiður Ríkharðsdóttir fyrrv. bæjarstjóri
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 15. febrúar 2010
Hefðum kannski átt að vera í 2 mínútur!
Það var góð stemning þegar bæjarbúar söfnuðust saman á miðbæjartorginu og reyndu að setja heimsmet í hópknúsi. Manni hlýnaði við faðmlögin og ég er sannfærður um að þótt að ekki hafi náðst að bæta metið með því að vera í faðmlögum í eina mínútu þá hefðum við bara átt að vera í tvær mínútur.
Þá allavega hefðum við slegið metið í 2mín hópknúsi
En allavega þá er þetta íslandsmet og gaman að það sé í eigu okkar Mosfellinga.
Þetta er skemmtilegur viðburður sem ber að viðhalda og ég er sannfærður um að við náum að slá metið.
Íslandsmet í hópfaðmlagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 10. febrúar 2010
Stór sigur !
Prófkjöri Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ er lokið. Á kjörskrá voru 1341 manns og 15 manna fríður hópur frambjóðenda að keppast um hylli sinna manna í Mosfellsbæ.
Ég sóttist eftir 4.sætinu og endaði að lokum í því sjötta. Það tel ég vera stórsigur allavega fyrir mig persónulega. Ég er svokallaður nýbúi í Mosfellsbæ og hef ekki mikla reynslu í bæjarpólitík.
Að lenda í 6.sæti er frábær árangur sem ég er mjög stoltur af.
Ég er staðráðin í því að nota þetta tækifæri sem kjósendur hafa treyst mér fyrir og láta finna fyrir mínum krafti og áhuga.
Nú tekur við önnur kosningabarátta sem mun enda að kvöldi 29.maí n.k.
Ég vil fá að nota tækifærið hér og þakka öllum þeim sem höfðu trú á mér og gáfu mér sinn stuðning í nýafstöðnu prófkjöri. Þið hafið valið mig til að taka þátt í starfi fyrir bæinn okkar og mun ég hlýða því og gera mitt besta til að gera bæinn okkar að betri bæ.
Laugardagur, 6. febrúar 2010
Glæsilegur hópur
Flottur árangur hjá okkur í Sjálfstæðisflokknum. Og kjörsókn góð.
Nú býður okkar undirbúningsvinna og kosningabarátta í maí.
Haraldur sigraði í Mosfellsbæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 6. febrúar 2010
Fékk 6.sætið
Úrslitin liggja fyrir í prófkjörinu. Ég fékk 6.sætið sem er frábær árangur og er ég mjög sáttur.
Úrslitin urðu þessi:
1.sæti 671 atkvæði Haraldur Sverrisson
2.sæti 364 atkvæði HerdísSigurjónsdóttir
3.sæti 340 atkvæði Bryndís Haraldsdóttir
4.sæti 324 atkvæði Hafsteinn Pálsson
5.sæti 343 atkvæði Kolbrún G. Þorsteinsdóttir
6.sæti 323 atkvæð Rúnar Bragi Guðlaugsson
7.sæti 370 atkvæði Theodór Kristjánsson
Laugardagur, 6. febrúar 2010
Auglýsing frá mér í Mosfellingi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. febrúar 2010
Frambjóðendur í Mosfellingi í dag.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. febrúar 2010
Formleg kosningabarátta senn að ljúka.
Nú fer að líða að lokum formlegri kosningabaráttu, og kjördagur að renna upp.
Ég vil fá að nota tækifærið og þakka meðframbjóðendum mínum fyrir drengilega og skemmtilega kosningabaráttu. Þessar síðustu vikur og mánuðir hafa verið fróðlegir og ég hef kynnst mikið af nýju og skemmtilegu fólki á leið minni í þessari kosningabaráttu.
Einnig langar mér að nýta tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa aðstoðað mig og staðið við bakið á mér í kosningabaráttunni.
Ég minni á að kosið er í Lágafellsskóla á morgun frá kl. 10:00 - 19:00. Hvet ég alla til þess að taka þátt og velja sigurstranglegan lista.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4. febrúar 2010
120 manns mættu í Hlégarð.
Það var góð mæting í gær á framboðsfundinum í Hlégarði og um eða yfir 120 manns voru mættir til að heyra í öllum 15 frambjóðendunum. Snorri Gissurarson formaður Sjálfstæðisfélagsins setti fundinn og frambjóðendur héldu sínar ræður.
Það er alveg á hreinu að það verður erfitt að gera upp á milli frambjóðenda því hópurinn er stórgóður og allir stóðu sig með prýði í sínum ræðum.
Eftir að allir höfðu flutt ræðurnar þá skiptum við okkur á milli borða og fengu gestir að spyrja okkur spjaranna úr. Það var mjög fróðlegt að heyra hvað bæjarbúar höfðu að segja, og sum mál voru heitari en önnur. Það var samt greinilegt að atvinnumál eru ofarlega á baugi hjá þorra bæjarbúa.
Ég vona að við höfum náð að gera fólki auðveldara með að ákveða hvað þeir munu kjósa á laugardaginn nk.
Munið bara að setja 4 fyrir framan nafnið hjá mér
(Ath ég fékk myndirnar hérna lánaðar hjá Herdísi af fésbókinni)
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.2.2010 kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)