Þriðjudagur, 2. febrúar 2010
Framboðsfundur í Hlégarði 3.febrúar kl. 20:00
Á morgun miðvikudag verður haldin framboðsfundur í Hlégarði þar sem okkur frambjóðendum gefst kostur á að kynna okkar málefni og skoðanir fyrir gestum og gangandi, ásamt því að taka á móti spurningum úr sal. Það verður án efa glatt á hjalla og margir sem vilja koma á framfæri spurningum til bæði núverandi bæjarfulltrúa og þeirra sem nú eru að bjóða sig fram í prófkjörinu.
Ég hvet þig til að mæta og taka þátt í umræðunum og fylgjast með ræðum frambjóðenda.
Kveðja,
Rúnar Bragi Guðlaugsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.