Færsluflokkur: Bloggar

Síðast fauk allt um koll !

logo

Landsmót var siðast haldið í Mosfellsbæ 1990 og þá brugðust veðurguðir bæjarbúum og þátttakendur voru í sögulegu lágmarki.  Er ekki komin tími á að Mosfellingar fái tækifæri til að sína gestrisni sína og bjóða heim?

Rifjum það aðeins upp..

20. Landsmót UMFÍ í Mosfellsbæ 12. - 15. júlí 1990

Ungmennasamband Kjalarnesþings sá um undirbúning og framkvæmd mótsins en það fór fram dagana 12. - 15. júlí. Að þessu sinni brugðust veðurguðirnir gjörsamlega er þeir skelltu á mannskapinn veðri sem aldrei hafði sést á Landsmóti fyrr. Fyrsta mótsdaginn var veður hið besta en á föstudaginn byrjaði að hvessa og á laugardaginn gerði ofsarok, allt lauslegt fauk, tjöld losnuðu upp og fuku af stað svo að til vandræða varð. Af þessu leiddi að áætlanir um aðsókn brugðust og voru mótsgestir aðeins 5000 talsins.
Mótið hófst formlega með hátíðlegri athöfn á fimmtudagsmorgni að viðstöddum forseta Íslands, Vigdísi Finnbogadóttur. Hún ávarpaði mótið og gróðursetti síðan birkiplöntur, með aðstoð mótsgesta, í nýjum skrúðgarði við Varmárvöll. Sjálf setningarathöfnin fór svo fram á föstudagskvöldinu. Þar fluttu ávörp Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra og Svavar Gestsson menntamálaráðherra. F.h. íþróttamanna talaði hlaupastelpan Fríða Rún Þórðardóttir. Fimleikaflokkur frá UMSK og Danmörku sýndu, sýningarleikur var í ruðningsbolta og söngfuglar af ýmsu tagi skemmtu. Heiðursgestur mótsins var Hafsteinn Þorvaldsson fyrrum formaður UMFÍ.

Keppendur voru 1466 frá 28 samböndum. Keppt var í frjálsum íþróttum, sundi, borðtennis, glímu, júdó, starfsíþróttum, blaki, bridds, fimleikum, handknattleik, knattspyrnu, körfuknattleik og skák. Meðal sýningargreina sem keppt var í voru golf, íþróttir fatlaðra, karate, siglingar og hestaíþróttir. Sýningarmenn voru 573.

Staðreyndir um Landsmót.

Landsmót UMFÍ er fjölmennusta íþróttamót á Íslandi. Fyrsta mótið var haldið árið 1909, en síðan 1940 hafa þau verið haldin 3ja hvert ár með undantekningum. Á Landsmótum er keppt í mörgum greinum íþrótta auk ýmissa starfsíþrótta eins og dráttarvélarakstri, starfshlaupi, línubeitingu auk annarra greina. Fjöldi keppenda er um 2000 og þeir sem koma og fylgjast með eru frá 12 til 20.000, en hefur mest farið uppí 25.000 manns árið 1965 á Laugarvatni.

Það sem gerir mót þetta að stórviðburði á Íslandi er hinn mikli fjöldi keppenda og áhorfenda auk mikillar fjölbreytni í keppnisgreinum.

Landsmót UMFÍ hafa sett sterkan svip á íslenska íþróttasögu og þeim hefur jafnan fylgt mikil uppbygging á þeim stöðum sem mótin eru haldin. Þegar verið haldin 25 Landsmót, en það 26. verður haldið árið 2009 á Akureyri og eru 100 ár síðan fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið en það var einmitt haldið á Akureyri 1909. 100 ára sögu Landsmóta UMFÍ verður því fagnað á Akureyri 9.-12. júlí 2009.


mbl.is Fimm sækja um unglingalandsmót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta forvörnin !

KrakkarLangbesta forvörnin fyrir alla krakka og unglinga er tvímælalaust íþrótta og tómstundaiðkun. Ef foreldrar eru virkir og áhugasamir og styðja við bakið á sínum börnum í einu og öllu þá minnka stórlega líkur á því að barnið eða unglingurinn leiðist út á rangar brautir. Sjálfboðaliðastarf foreldra er oft vanmetið og þá oftast af sjálfum foreldrunum. Þegar barnið þitt stundar tómstundir eða íþróttir þá eru alltaf einhverjir foreldrar sem eru að vinna mikið starf til að leggja félaginu eða samtökunum lið. Sumir halda að þeir geti sent börnin sín í tíma hjá sínu félagi og allt gerist að sjálfu sér, þar á jú að vera fólk og starfsmenn sem sinna barninu og koma því áfram á framabraut.

Þessi félög þurfa líka góðan stuðning og skilning innan síns bæjarfélags.

Bæjarfélög skipta miklu máli þegar kemur að tómstundum barna og unglinga í sínu bæjarfélagi. Það að taka þátt í því að auðvelda aðgengi og geta tekið þátt í því að sameina t.d. skóla og tómstundir gefur börnunum ómetanlegan kraft til að halda áfram í því sem það gerir og getur stuðlað að því að viðkomandi einstaklingur eða hópar ná langt.


Röðun á kjörseðilinn komin

HúsiðÁ fundi í gærkvöldi hittust frambjóðendur og drógu úr hatti númer sem segir til um hvar þeir verða á kjörseðlinum. Undirritaður dró töluna sex og sem þýðir að nafnið mitt verður númer 6 í röðinni.

15 frambjóðendur gefa kost á sér í prófkjörinu sem fram fer 6. febrúar.

Svona lítur röðin út;

 Bryndís Haraldsdóttir
 Hreiðar Örn Zoega Stefánsson
 Þórhallur Kristvinsson
 Theodór Kristjánsson
 Kolbrún G. Þorsteinsdóttir
  4.Rúnar Bragi Guðlaugsson
 Júlía M. Jónsdóttir
 Haraldur Haraldsson
 Hjörtur Methúsalemsson
 Herdís Sigurjónsdóttir
 Örn Jónasson
 Eva Magnúsdóttir
 Hafsteinn Pálsson
 Elías Pétursson
 Haraldur Sverrisson

Frábær árangur

Íslenski fáninnÞað er ánægjulegt að ná að leggja Þjóðverja með samtals 8 mörkum á aðeins tveimur dögum í Þýskalandi. Vonandi er þetta það sem koma skal í Austurríki. Nú er bara að taka Portúgala á miðvikudaginn.

Ég sé fyrir mér að ef þetta er forsmekkurinn þá munu Íslendingar flykkjast á völlinn í Austurríki. Það er alltaf gaman að fá frí frá neikvæðri umræðu í þjóðfélaginu og brosa og hlakka til næsta leiks með "strákunum okkar"

ÁFRAM ÍSLAND


mbl.is Aftur fjögurra marka sigur á Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver vill ekki fá þetta fólk í bæinn?

Það yrði gríðarleg lyftistöng fyrir bæinn að fá að halda Unglingalandsmót, þátttakendur og aðstandendur eru á bilinu 10 þúsund manns um hverja verslunarmannahelgi og má segja að Unglingalandsmót séu ein fjölmennasta útihátíðin á Íslandi. Til gamans þá set ég hér inn myndband fyrir þá sem aldrei hafa upplifað stemminguna við landsmót. Hver vill ekki fá þetta fólk í bæinn?

Hver á að borga?

Gefum okkur það að ég reki vinsælustu SPA stofur landsins og ég sé með útibú um allt land, landsmenn keppast við að koma í allar meðferðirnar sem í boði eru og labba alltaf glaðir út eftir allar strokurnar og ráðin sem starfsmenn mínir hafa ráðlagt öllum viðskiptavinunum. Allt gengur eins og í sögu og fyrirtækið blómstrar og peningarnir streyma inn og mér líður eins og ég geti sigrað heiminn.

Á þessum tímapunkti þá ákveð ég að færa fyrirtækið á næsta "level" og setja upp SPA stofur í Bretlandi og Hollandi. Frábær hugmynd, nú skulu Bretarnir og Hollendingar finna hvernig alvöru SPA er í raun og veru, þeim mun líða eins og ný útsprunginni rós alla daga og líðan þeirra verður sem aldrei fyrr.

Það er best að byrja á því að selja öllum árskort því það er langhagstæðast fyrir viðskiptavinina og þeir munu græða mest á því. Já viti menn, árskortin flugu út og allt ætlaði um koll að keyra. Ég var að verða kóngurinn sjálfur og allir peningarnir sem viðskiptavinirnir komu með vááá ég þarf bara að koma þeim í örugga hirslu á einhverri góðri eyju sem engin getur fundið þá því ég ætla að eiga þá fyrir sjálfan mig og engan annan.

Skömmu seinna kemur svo að því..., vegna vatnsleka heima á íslandi í stærstu SPA höllinni og ég komst að því að ég hafði gleymst því í allri gleðinni að sá sem átti að sjá um að borga leiguna fyrir mig var bara búin að setja allan peninginn í eigin vasa og skuldirnar því staflast upp. Það er ekkert hægt annað að gera en að loka í útlöndum og hérna heima og reyna að gera sem best úr þessu.

Þá koma að sjálfsögðu allir korthafarnir og krefjast þess að fá árskortin sín endurgreidd!! Úpps hver á að borga?? Ég er eiginlega búin með allan peninginn í kampavín og veisluhöld og get nú ekki farið að hrófla neitt við aurunum sem ég er með á eyðieyjunni...  ég þarf jú að eiga til mögru árana.

Ég veit.. látum bara íslensku þjóðina borga þetta fyrir mig til baka! Við Íslendingar erum alltaf svo gott fólk við hljótum að geta bætt þessu við okkur.

 


mbl.is Bjarni: Eigum aðra kosti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagurinn í dag

Bjarnfredarson_1Eftir góðan fund í morgun með stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Mosfellsbæ og hollustu hádegisverð er stefnan tekin í bíó. Verður maður ekki að láta það eftir sér að fara á Bjarnferðason í Sambíóunum. Dóttir mín er búin að bíða eftir því að fá að fara á myndina og í dag skal vera farið.

Sonurinn fór í gær á Ísafjörð með afa sínum og ömmu og ætlar að reyna að renna sér á bretti um helgina ef snjórinn heldur sér ennþá í brekkunum.

Þetta lítur út fyrir að verða alveg prýðisdagur í dag Smile

 


Ég óska eftir þinum stuðningi

xd 

Öllum flokksbundnum Sjálfstæðismönnum i Mosfellsbæ gefst kostur á að kjósa í prófkjöri 6. febrúar n.k. Ég sækist eftir 4.sæti í prófkjörinu og óska ég eftir þínum stuðningi.

Ef þú ert ekki skráður í flokkinn þá getur þú gert það hér:
http://www.xd.is/?action=ganga_i_flokkinn

 


Frost og snjór hamlar íþróttaiðkun!

SnórÞað er alveg hrikalegt að heyra að það þurfi að leggja niður æfingar á gervigrasinu okkar vegna þess að hitalagnirnar ná ekki að bræða snjóinn. Frostið er svo mikið að það er beinlínis hættulegt að hleypa börnunum okkar út á völlinn.

Æfingar í dag hafa breyst mikið frá því að ég var sjálfur að æfa fótbolta í gamla daga, þá var alltaf spilað inni á annaðhvort dúk eða parketi, í dag eru 90% æfingatíma barna og unglinga hjá Aftureldinu á gervigrasi þó með undantekningu allra yngstu flokkanna. Ég er sannfærður um að það eru alltaf afföll á iðkendum vegna þess einfaldlega að þeir vilja ekki þurfa að sprikla úti í frostinu. Og hvað verður um þessa krakka sem annaðhvort hætta í íþróttum vegna aðstöðuleysis?

Það er löngu vitað að besta forvörnin sem hægt er að hugsa sér er að börnin okkar stundi íþróttir eins lengi og þau geta og hafa áhuga til. Það hjálpar ekki að þurfa að stunda sína íþrótt í brjálaðri norðanátt og gaddi.

Það er mín skoðun að okkur Mosfellinga vantar yfirbyggðan íþróttavöll. Möguleikar Mosfellinga með slíku húsi eru fjölþættir, ekki bara það að allir iðkendur geti stundað sínar æfingar inni á veturna , heldur bíður svoleiðis hús uppá endalausa möguleika á hinum ýmsu atburðum t.d. ráðstefnu - og tónleikahaldi.


Tilkynning um framboð í Mosfellingi

frettimosfellingiÉg tilkynnti um framboð mitt í síðasta tölublaði Mosfellings sem kom út þann 18. desember.

Hér má sjá þá tilkynningu:

Rúnar Bragi sækist eftir fjórða sætinu

Rúnar bragi Guðlaugsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer 6. febrúar. Rúnar starfar sem innkaupastjóri Fríhafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Rúnar situr í stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Mosfellsbæ. Hann hefur einnig unnið að ýmsum félagsstörfum, m.a. verið í stjórn barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar UMFA auk þess sem hann hefur verið formaður Þorrablótsnefndar.

"Ástæða þess að ég gef kost á mér er einlægur áhugi á að láta gott af mér leiða samfélaginu til heilla. Þetta er mikil áskorun og vil ég leggja mtt af mörkum til að gera góðan bæ betri," segir Rúnar.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband