Mánudagur, 15. febrúar 2010
Hefðum kannski átt að vera í 2 mínútur!
Það var góð stemning þegar bæjarbúar söfnuðust saman á miðbæjartorginu og reyndu að setja heimsmet í hópknúsi. Manni hlýnaði við faðmlögin og ég er sannfærður um að þótt að ekki hafi náðst að bæta metið með því að vera í faðmlögum í eina mínútu þá hefðum við bara átt að vera í tvær mínútur.
Þá allavega hefðum við slegið metið í 2mín hópknúsi
En allavega þá er þetta íslandsmet og gaman að það sé í eigu okkar Mosfellinga.
Þetta er skemmtilegur viðburður sem ber að viðhalda og ég er sannfærður um að við náum að slá metið.
Íslandsmet í hópfaðmlagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.