Þriðjudagur, 2. febrúar 2010
Úff þá getur maður andað léttar..
Eftir að vera búin að fá að færa til dagskrá og allt að smella, þá fékk maður þær fréttir að flugmenn væru á leiðinni í verkfall á fimmtudaginn. Það er einmitt sami dagur og áætluð brottför okkar er til Þýskalands. Það var komið plan A - B og C en sem betur fer þá er þessi deila leyst. Allavega um sinn. Ég vona bara að allir gangi sáttir frá borði og ég þurfi ekki að vera með hjartað í buxunum yfir því að einfaldir hlutir eins og framboðsfundur þurfi að færast út af verkfalli. Nóg er nú búið að vandræðast yfir þessu öllu saman.
Verkfalli flugmanna frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.